Ragna í New York

30. október 2008

Maður bjóst nú svo sem alveg við einhverju


Var að fá tilkynningu frá Icelandair um að þeir væru að byrja að rukka fyrir máltíðir. Hélt fyrst kannski að þeir væru búnir að aflýsa fluginu mínu þar sem fyrirsögnin var "Þjónustubreytingar er varða þitt flug". Í staðinn á maður víst að hafa betri matseðil og val um mat. Þar sem ég bókaði flugið mitt fyrir 1. október þá vildu þeir tilkynna mér að ég myndi fá samloku mér að kostnaðarlausu. Rosalega eru þeir góðir við mann...

Þann 31 október, 2008 15:25, sagði Blogger Unknown...

Já, njóttu samlokunnar. :D Hvenær er annars von á þér?
Kv. Kristín Ásta

 
Viltu tjá þig?

28. október 2008

Anastasia

Rosalega erfitt ad ná mynd af henni.

Þann 28 október, 2008 21:59, sagði Blogger Unknown...

áttu kisu?

 
Þann 28 október, 2008 22:41, sagði Blogger Ragna...

Ég var alveg handviss að ég hafði bloggað um það áður. En svo þegar ég leitaði að póstinum þá fann ég hann ekki við fyrstu leit. En sko tæknilega séð þá á ég ekki kisu en ég bý með kisu. Karin á hana sem sagt en við erum góðar vinkonur sko. Hún er búin að búa hérna frá því í júlí.

 
Þann 28 október, 2008 22:42, sagði Blogger Ragna...

Þ.e. sko við kisa erum góðar vinkonur og nátla við Karin líka...

 
Þann 30 október, 2008 15:56, sagði Anonymous Nafnlaus...

þú bloggaðir um það e-n tímann í mjög stuttum pósti, nenni samt ekki að fara að leita að því, allavega vissi ég að þú byggir með kisu, Lára Innsbruck

 
Þann 16 nóvember, 2008 15:08, sagði Blogger Unknown...

Hún er rosalega sæt!

 
Viltu tjá þig?

23. október 2008

Dægurflugan

Fyrst ég byrjaði að blogga á annað borð þá langaði mig að spyrja einna spurningar. Hvernig stendur á því að ég hef ekki séð neitt minnst á "Singing Bee"? Þetta er alveg snilldarþáttur og "útlendingar" geta horft á hann á netinu hjá skjáeinum. Þetta er svona ekta þáttur fyrir Íslendinga með sönginn í fyrirrúmi. Ég amk loka mig inni í herbergi og syng hástöfum með, sérstaklega íslensku lögunum. Svo sakaði ekki að gamli vinnustaðurinn VÍS tók þátt í síðasta þætti. Algjör snilld þegar maður kannast við fólkið í sjónvarpinu.
Annars er nafnið annað mál - hvað er málið með Singing bee? Ég meina mér finnst dægurflugan miklu flottara nafn og ég kom upp með það á 10 sekúndum.

Þann 24 október, 2008 12:18, sagði Blogger Unknown...

Æ, þetta er ömurlegur þáttur. Það er ekkert gaman að hlusta á sama lagið aftur og aftur og svo getur fólk ekki munað sama bútinn. Mér finnst þetta sko ekkert skemmtilegt. Það er samt örugglega gaman að vera þátttakandi.

 
Viltu tjá þig?

Í hnotskurn

Frá því í síðustu viku hef ég:
  • komið upp um svindlara á prófum
  • farið yfir fyrrnefnt próf
  • spilað Rockband - ég er að verða algjör snillingur
  • horft á síðustu kappræðuna heima hjá vini mínum sem á heima niðri í Chelsea sem bæ thö vei er nágranni Brúsa Villis og Emmu undirfatakærustunnar hans (búa á sömu hæð og það eru bara tvær íbúðir á hæð - úff hugsa sér ef maður villtist og beygði til vinstri úr lyftunni en ekki hægri. Björn Bjarna myndi öfunda mig...)
  • farið á Woyzeck með Vesturporti í Brooklyn
  • farið í ferð með samnemendum til Delaware Water Gap þar sem við fórum í gönguferðir, villtumst, héldum varðeld, fórum í leiki, meiri gönguferðir, fórum á kanó (þar sem ónefndir aðilar duttu í vatnið), náði salamöndru og todpole (forfroskur).
  • fór í lambalæri til Völlu og Geirs í Princeton á þriðjudagskvöldið og var það bara mjög skemmtilegt. Ekkert svo slæmt að ferðast svona eina kvöldsstund til Princeton og fyrst Valla nennir að koma til NYC þá get ég alveg nennt að kíkja til Princeton. Græddi líka afmælisgjöf og alls konar krem í kaupbæti. (Það mættu aðrir alveg taka hana sér til fyrirmyndar.)

Þann 24 október, 2008 12:19, sagði Blogger Unknown...

Nóg að gera sé ég.

 
Viltu tjá þig?

9. október 2008

Hlutabréfamarkaðurinn

Mladen sendi mér þennan brandara:

Once upon a time a man appeared in a village and announced to the villagers that he would buy monkeys for $10 each.

The villagers, seeing that there were many monkeys around, went out to the forest and started catching them.


The man bought thousands at $10 and, as supply started to diminish, the villagers stopped their effort. He next announced that he would now buy monkeys at $20 each. This renewed the efforts of the villagers and they started catching monkeys again.


Soon the supply diminished even further and people started going back to their farms. The offer increased to $25 each and the supply of monkeys became so scarce it was an effort to even find a monkey, let alone catch it!


The man now announced that he would buy monkeys at $50 each! However, since he had to go to the city on some business, his assistant would buy on his behalf.


In the absence of the man, the assistant told the villagers: 'Look at all these monkeys in the big cage that the man has already collected. I will sell them to you at $35 and when the man returns from the city, you can sell them to him for $50 each.'


The villagers rounded up all their savings and bought all the monkeys.


They never saw the man or his assistant again, only lots and lots of monkeys!


Now you have a better understanding of how the stock market works 

Þann 14 október, 2008 22:51, sagði Blogger Hákon...

Já þetta er nokkurn veginn það sem virðist gera á þessum markaði eða öllu heldur samkomu spákaupmanna og vitleysinga.
Íslenska "úrvals"-vísitalan var 9050 stig í júlí í fyrra og var í lok dags í dag 678 stig.
Einhvern veginn er ég afar feginn að hafa losað mig við öll hlutabréf í júlí í fyrra :)

 
Viltu tjá þig?

7. október 2008

Forsetakosningar

Valla benti mér á þetta myndband. Ágætt til að gleyma öllu öðru sem er að gerast þessa dagana.


1. október 2008

Woyzeck

Ohh ég er svo dugleg að blogga þessa dagana. En já sem sagt keypti miða á Woyzeck með Vesturporti, fyrir okkur Völlu. Við ætlum að fara föstudaginn 17. október en það verða víst þrjár sýningar 15., 17. og 18. október. Sjá hér.  Jane var svo elskuleg að láta mig vita af þessu. 

Þann 02 október, 2008 18:39, sagði Blogger Hanna...

þú átt ekki eftir að verða fyrir vonbrigðum, allavega fannst mér þetta mjög flott sýning :) skemmtið ykkur ógó vel :)
Kv. Hanna

 
Viltu tjá þig?

Ef einhver mun nokkurn tí­ma lesa þetta þá má hinn sami láta mig vita. Verðlaunin eru kvöldmatur - ég splæsi. If someone will ever read this then you can let me know. You'll have to tell me were on the webpage this code is. The prize, dinner on me. Condition is that you have to know me ;)