Ragna í New York

27. júní 2007

Víííí

Ennþá bíður ferðasagan. Önnur kemur hér samt.
Er stödd í Delaware - skrapp örstutt í dag eftir hádegið þar sem ég heyrði að hægt væri að nota mig til að hjálpa nokkrum vel völdum einstaklingum að búa sig undir íslandsför...
minntist á þetta við Kobi vin minn sem sat við hliðina á mér í tíma. Eftir tímann hringir hann í mig og spyr hvort ég vildi vera samferða til Princeton (hann býr þar sko)og hann gæti svo skutlað mér restina af leiðinni. Ég þáði það með þökkum. Eftir ævintýralega ferð til New Jersey komum við að á lestarstöðina og þá sá ég fararskjótann. Æðislega krúttlegan tveggja sæta svartan blæjubíl og hann var beinskiptur (í USA eru nánast bara sjálfskiptir bílar sko). Þannig að skemmtilegt ferðalag í dag - held að Harold hafi heldur betur brugðið þegar við mættum honum á leiðinni heim að húsinu ;) Takk Kobi!!!

Annað að frétta: fór með Völlu í karnival um daginn (nánar um það síðar) en í gær fékk ég hringingu og var sagt að ég hefði verið dregin út í happadrætti. Hahahaha eftir að hafa fengið nánari útlistun á hvað ég þyrfti að gera afþakkaði ég pent. Fannst þetta samt fyndið því við Valla vorum einmitt búnar að ræða hvort við værum "löglegar" í happadrættinu.

Þann 28 júní, 2007 06:28, sagði Blogger Ragnhildur...

og hvað þurftir þú að gera til að fá vinninginn?

 
Viltu tjá þig?

25. júní 2007

Ólæti

Ég er byrjuð á drögum að næsta parti af frásögn síðasta mánuðar - kemur inn seinna.

Annars er ég að undra mig á þyrlunni sem er búin að vera á sveimi hérna yfir hverfinu mínu frá því kl 7 í kvöld (að verða tíu núna). Það er svo mikill hávaði í henni að þegar hún er í kyrrstöðu beint yfir götunni minni (eða næstu) þá heyri ég varla í sjónvarpinu (verð að vera með opna glugga til að fá aðeins kaldara loft inn). Spurning er bara hvað er í gangi? Það hlýtur að vera e-r frægur hérna í heimsókn. Ég kíkti á heimasíðu Columbia en sá ekki neitt þar í gangi. Ég hefði kannski átt að fara út í göngutúr og ath hvort það væri e-r heví öryggisgæsla e-s staðar á svæðinu. Hvað þarf maður annars að vera frægur til þess að fá þyrlu á eftir sér?

Þann 27 júní, 2007 12:03, sagði Anonymous Nafnlaus...

kannski var verið að taka upp kvikmynd eða myndband? hlakka til að heyra meiri ferðasögu :)

 
Þann 27 júní, 2007 14:20, sagði Blogger Unknown...

Mér dettur strax í hug fyrirsát. Kannski er strokufangi þarna í felum eða gíslataka í gangi! En þá hefðu sennilega verið löggubílar á svæðinu og fullt af fjölmiðlum...
Kv. Kristín Á.

 
Þann 27 júní, 2007 19:49, sagði Blogger Ragnhildur...

Mér datt nú bara í hug Paris Hilton ;)

 
Viltu tjá þig?

Ef einhver mun nokkurn tí­ma lesa þetta þá má hinn sami láta mig vita. Verðlaunin eru kvöldmatur - ég splæsi. If someone will ever read this then you can let me know. You'll have to tell me were on the webpage this code is. The prize, dinner on me. Condition is that you have to know me ;)